Viðskipti
| mbl
| 23.4.2010
| 16:00
Fyrirtæki geta sótt um höfuðstólslækkun
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, sagði á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í vikunni, að bankinn muni í næstu viku hefja að bjóða fyrirtækjum sem eru með tekjur í íslenskum krónum og lán í erlendri mynt að sækja um höfuðstólslækkun þannig að höfuðstóll lánanna færist eins og hann var 29. september 2008.
„Um leið verður lánunum breytt í verðtryggð eða óverðtryggð lán í íslenskum krónum og við það getur höfuðstóll erlendra lána til fyrirtækja lækkað allt að 30%," sagði Birna.
Hún áréttaði að ef Íslandsbanki lendi í þeirri aðstöðu að þurfa að leysa til sín fyrirtæki vegna skulda sé það markmið bankans að koma þeim sem fyrst í hendur á áhugasömum fjárfestum og rekstraraðilum í gagnsæju og opnu söluferli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















