Viðskipti
| mbl
| 23.4.2010
| 10:15
| Uppfært
10:54
Grikkir óska eftir aðstoð
Grísk stjórnvöld hafa óskað eftir því, að áætlun Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um fjárhagsaðstoð verði virkjuð. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagði, að afgreiðslu þessarar óskar Grikkja yrði flýtt.
George Papandreou, forsætisráðherra, sagði í sjónvarpsávarpi til grísku þjóðarinnar í morgun, að Grikkir þyrftu á því að halda að áætlun ESB og AGS væri virkjuð. Hafi hann falið fjármálaráðherra landsins að undirbúa það.
„Samstarfsríki okkar munu gera það sem þarf til að bjóða okkur örugga höfn þannig að bátur okkar geti flotið á ný... og þannig sent fjármálamörkuðum boð um að Evrópusambandinu er alvara og það muni verja evruna," sagði forsætisráðherrann.
Gengi evrunnar hækkaði lítillega í kjölfar þessara frétta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















