Viðskipti
| mbl
| 23.4.2010
| 8:41
Hagvöxtur í Bretlandi
Breska hagkerfið óx um 0,2% á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við síðasta fjórðung ársins 2009. Þetta kemur fram í nýjum tölum, sem hagstofa landsins birti í morgun. Sérfræðingar höfðu raunar spáð 0,4% vexti.
Bresk efnahagsmál hafa verið eitt helsta umræðuefnið í kosningabaráttunni, sem nú er háð fyrir þingkosningar í Bretlandi 6. mars. Hagvöxtur mældist að nýju í landinu í lok síðasta árs eftir lengsta samdráttarskeið frá því mælingar hófust.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















