Viðskipti
| mbl
| 25.4.2010
| 14:28
Þróunarríki fá aukið vægi innan Alþjóðabankans
Gheitner kemur til myndatöku á fundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington í dag. Reuters
Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag, að aðildarríki Alþjóðabankans hafi fallist á, að veita þróunarríkjum aukið vægi þegar kemur að stefnumótun bankans og hvernig sjóðum hans er útdeilt.
Þá sagði Geithner, að Alþjóðabankinn hefði fært sannfærandi rök fyrir því, að auka framlög til hans um 3,5 milljarða dala. Hefðu Bandaríkin þegar heitið 1,1 milljarði dala í aukafjárveitingu til sjóðsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















