Viðskipti
| mbl
| 26.4.2010
| 17:37
Spáir hækkandi olíuverði
Greiningardeild Danske Bank spáir því að hrávöruverð muni hækka umtalsvert á þessu ári og að reikna megi með að verð á hráolíu komist tímabundið yfir 100 dali fyrir tunnuna. Verðið er nú um 85 dalir tunnan á heimsmarkaði.
Fram kemur á fréttavef Jyllands-Posten, að sérfræðingar Danske Bank reikni með því að meðalverð á olíu verði 86 dalir á þessu ári og 94 dalir á því næsta. Bankinn býst einnig við að verð á öðrum hrávörum muni hækka vegna vaxandi eftirspurnar í Asíu, einkum í Kína.
Sérfræðingar bankans telja hins vegar að ólíklegt sé að olíuverð fari mikið yfir 100 dali. Svo hátt verð muni draga úr eftirspurt og einnig megi búast við að OPEC-ríkin auki olíuframleiðslu á ný en þau hafi dregið úr framleiðslu til að ýta undir verðið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















