Skuldatryggingarálagið hækkar
Skuldatryggingarálag ríkissjóðs Íslands hefur hækkað síðustu daga. Í dag var álagið til 5 ára 401 punktur, eða 4,01% en á föstudag var það 370 punktar, að því er kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka.
Áhættuálagið á ríkissjóð hefur lækkað jafnt og þétt frá því í byrjun febrúar þegar það náði 675 punktum, og hefur það haldist undir 400 punktum síðustu vikurnar. Segir Íslandsbanki líklegt, að hækkunin að þessu sinni sé aðeins tímabundin og muni ganga til baka.
Ekki sé hægt að útiloka áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á áhættuálagið en líklegt sé að þessi hækkun tengist ekki sérstökum innlendum þáttum heldur komi í kjölfar aukinnar áhættufælni á mörkuðum, enda hafi álagið á mörg önnur ríki Evrópu hækkað á sama tíma, einkum Grikkland. Í dag var álagið á gríska ríkið til 5 ára komið í 764 punkta.
Þá var áhættuálagið á portúgalska ríkið 115 punktar um miðjan mars en nú í morgun var það 349 punktar. Á sama tíma hefur áhættuálagið á írska ríkið hækkað úr 116 punktum í 228 punkta og á hið spænska úr 94 punktum í 204 punkta.
Þrátt fyrir að skuldatryggingarálag á ríkissjóð Íslands hafi verið að lækka undanfarið er það enn hið áttunda hæsta af þeim ríkjum heims sem seldar eru skuldatryggingar fyrir. Þau sjö ríki sem eru með hærra skuldatryggingarálag eru Argentína (839 punktar), Venesúela (825 punktar), Grikkland (764 punktar), Pakistan (670 punktar), Úkraína (555 punktar), Dubai (427 punktar) og Írak (416 punktar).



















