Bankar lítill hluti eigna skilanefnda
eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
Líklegra er að kaupendur skuldabréfa gömlu bankanna horfi til endurheimtu úr þrotabúi þeirra fremur en eignarhlutar í nýju bönkunum. Agnar Hansson, forstöðumaður markaðsviðskipta hjá H.F. Verðbréfum, segir að bankarnir sem skilanefndir Kaupþings og Glitnis hafi tekið yfir séu lítill hluti heildareigna skilanefndanna.
„Arion banki er til að mynda mjög lítill hluti heildarpakkans hjá skilanefnd Kaupþings. Ég held að menn séu hóflega bjartsýnir á hversu mikið kemur út úr þeirri eign. Eigið fé Arion er 70-80 milljarðar, en heildareignir skilanefndar Kaupþings eru yfir 1.500 milljarðar,“ segir Agnar.
H.F. Verðbréf hafa á síðustu misserum í mörgum tilfellum haft milligöngu um kaup og sölu á skuldabréfunum. „Viðskipti með skuldabréf gömlu bankanna eru þó mun stopulli en áður og veltan minni eftir að kröfulýsingarfrestur rann út,“ segir hann.
Undarleg verðhækkun
Skuldabréf á gamla Landsbankann hafa hækkað mikið á síðustu mánuðum. Agnar segir verðþróun á bréfunum illskiljanlega. Þó kunna þeir sem kaupa bréfin að vonast eftir því að dómstólar muni hnekkja neyðarlögunum og breyta þannig kröfuröð í þrotabú Landsbankans sem myndi auka heimtur almennra kröfuhafa. „Þó er vert að hafa í huga að krafa Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) í þrotabú Landsbankans hefur verið fest í krónum. Ef íslenska krónan veikist mjög mikið verða endurheimtur úr Landsbankanum mun hærri en krafa TIF hljóðar upp á. Þá er ekki þar með sagt að íslenska ríkið nái að loka sinni kröfu frá Bretum og Hollendingum sem er í erlendri mynt. Þeir sem kaupa skuldabréf á Landsbankann gætu því verið að verja sig gegn gengislækkun krónunnar.“Í hnotskurn
» Nýju bankarnir sem skilanefndirnar hafa tekið yfir eru lítill hluti eignasafns þeirra.» Eigið fé Arion banka er innan við 10% heildareigna skilanefndar Kaupþings.
» Skuldabréf á Landsbankann gætu verið áhættuvörn gegn gengisveikingu krónunnar.



















