Raunávöxtun LSR jákvæð um 2,9%

Raunávöxtun LSR var þokkaleg á síðasta ári.
Raunávöxtun LSR var þokkaleg á síðasta ári.

Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) var 11,9% á árinu 2009 sem svarar til 2,9% hreinnar raunávöxtunar. Þetta er heldur betri ávöxtun en aðrir lífeyrissjóðir sem hafa verið að birta uppgjör síðustu daga. Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR segir niðurstöðuna viðunandi.

Sveiflur í ávöxtun lífeyrissjóðsins hafa verið miklar undanfarin ár en meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 10 ár er 1,5%. Sé litið til síðustu 20 ára er meðaltal hreinnar raunávöxtunar 3,6% en í tryggingafræðilegri úttekt á stöðu og skuldbindingum lífeyrissjóða er miðað við að ávöxtun til langs tíma sé 3,5%.

Í árslok 2009 voru 55% af eignum sjóðsins í innlendum skuldabréfum, 0,8% í erlendum skuldabréfum, 1,1% í innlendum hlutabréfum, 33,0% í erlendum hlutabréfum, 4,2% í öðrum fjárfestingum og 5,9% í innlánum.

Staða A-deildar neikvæði um 13,2%

Um síðustu áramót voru samanlagðar eignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga (LH) 350 milljarðar króna og hækkuðu um 43,4 milljarða frá árinu á undan eða um 14,2%. Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu 2008 þegar eignir lækkuðu um 33,5 milljarða króna á milli ára.

Í fréttatilkynningu segir að óhætt sé að segja að skipst hafi á skin og skúrir þegar horft er á afkomu sjóðanna á árinu 2009. Stærstu eignaflokkar í verðbréfasafni LSR og LH eru nú erlend hlutabréf, innlend skuldabréf með ábyrgð ríkis eða sveitarfélaga og innlán. Erlend hlutabréf eru rúmlega þriðjungur heildareigna sjóðanna og skiluðu þau 35,8% ávöxtun á árinu. Vextir á innlánsreikningum í bönkunum voru með hæsta móti framan af árinu og nutu sjóðirnir góðs af því. Þá var ágæt ávöxtun á ríkisskuldabréfum og skuldabréfum sveitarfélaga.

Líkt og aðrir lífeyrissjóðir, hafa LSR og LH orðið fyrir þungu höggi í kjölfar falls bankanna á haustdögum 2008.  Nauðsynlegt reyndist að færa auknar fjárhæðir á afskriftarreikning í uppgjöri sjóðanna. Að teknu tilliti til afskrifta voru tekjur LSR af fjárfestingum 34,7 milljarðar króna á árinu og tekjur LH af fjárfestingum 2,3 milljarðar króna.

Áfallin skuldbinding B-deildar í árslok 2009 var 506,8 milljarðar króna miðað við 2% ávöxtun umfram launahækkanir, sem jafngildir 3,5% ávöxtun umfram vísitölu neysluverðs, og hækkaði hún um 2,4% á árinu. Samkvæmt útreikningi tryggingafræðinga eiga ríkissjóður og aðrir launagreiðendur að standa undir 214,5 milljörðum króna af skuldbindingum B-deildar með greiðslu lífeyrishækkana. Skuldbindingar sem sjóðurinn á sjálfur að standa undir eru því 292,3 milljarðar króna. Samkvæmt efnahagsreikningi var hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris í árslok 186,9 milljarðar króna. Mismunurinn á skuldbindingum sjóðsins og hreinni eign er með bakábyrgð ríkissjóðs.

Heildareignir A-deildar LSR námu 134,1 milljörðum króna í lok árs 2009. Nafnávöxtun A-deildar LSR var 11,4% á árinu 2009 sem svarar til 2,5% hreinnar raunávöxtunar.

Í lögum um lífeyrissjóði hefur verið miðað við að grípa skuli til viðeigandi ráðstafana ef munur á milli eignaliða og lífeyrisskuldbindinga er meiri en 10%. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði sem gildir vegna uppgjörs fyrir árið 2009 má þessi munur vera allt að 15%. Heildarstaða A-deildar er neikvæð um sem nemur 13,2% og kemur því ekki sjálfkrafa til breytinga á iðgjaldaprósentu. Í fréttatilkynningu segir að stjórn sjóðsins mun hins vegar taka til skoðunar hvaða áhrif neikvæð tryggingafræðileg staða hefur á framtíðarþróun sjóðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK