Fyrirtæki verði seld sem fyrst
Bankar eru almennt ekki góðir eigendur rekstrarfélaga og mikilvægt er að koma fyrirtækjum sem þeir taka yfir sem fyrst á markaðinn með opnu söluferli.
Þetta er meðal þess sem Friðrik Sophusson, formaður stjórnar Íslandsbanka, ræddi á aðalfundi bankans, sem haldinn var í gær.
Íslandsbanki hefur í dag talsverðra hagsmuna að gæta í stórum íslenskum fyrirtækjum. Til að mynda leysti bankinn til sín tæpan helmingshlut í Icelandair á síðasta ári.
Bankinn hefur einnig átt samstarf við skilanefnd Glitnis um endurskipulagningu Sjóvár, en söluferli þess fyrirtækis stendur nú yfir. Þó hafa borist fregnir um að ekkert þeirra tilboða sem bárust í fyrirtækið hafi verið nægilega hátt að mati þeirra sem sjá um útboðið.
Sjá nánar um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.



















