Viðskipti
| mbl
| 29.4.2010
| 15:52
Grísk hlutabréf hækkuðu um 7%
Helsta hlutabréfavísitala Grikklands hækkaði um 7,14% í kauphöllinni í Aþenu í dag eftir að hafa lækkað mikið síðustu daga. Voru þetta viðbrögð fjárfesta við fréttum um, að búið væri að ryðja úr vegi helstu hindrunum þess að Grikkir fái lánalínur hjá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Þá lækkaði ávöxtunarkrafa grískra ríkisskuldabréfa til 10 ára í dag og fór niður fyrir 10%. Ávöxtunarkrafa 2 ára skuldabréfa er hins vegar yfir 12%.
Hlutabréf hækkuðu einnig í helstu kauphöllum Evrópu í dag vegna fréttanna frá Grikklandi. FTSE 100 hlutabréfavísitalan í Lundúnum hækkaði um 0,56%, DAX vísitalan í Frankfurt hækkaði um 1% og CAC vísitalan í París hækkaði um 1,42%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















