Viðskipti
| mbl
| 29.4.2010
| 12:28
Vilja að Grikkir minnki fjárlagahallann mikið
Evrópusambandið (ESB) og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) vilja að Grikkir dragi úr ríkissjóðshalla um 10 prósentur á næstu tveimur árum, lækki laun opinberra starfsmanna og lífeyrisgreiðslur og hækki skatta.
Þetta fullyrtu fulltrúar grískra stéttarfélaga eftir fund með forsætisráðherra landsins í dag.
Verkalýðsleiðtogarnir sögðu, að ESB og AGS krefðust þess að gríska ríkið sparaði 25 milljarða evra á næstu tveimur árum. Fjárlagahallinn í Grikklandi fór í 13,6% af vergri landsframleiðslu á síðasta ári en stjórnvöld hafa heitið því að draga úr þeim halla um 4 prósentur á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















