10,7 milljarða tap Icelandair Group
Tap á rekstri Icealandair Group eftir skatta var 10,7 milljarðar króna á síðasta ári en var 7,5 milljarðar króna árið 2008. Stærstur hluti þess taps varð á síðasta fjórðungi ársins, eða 9,6 milljarðar króna en á sama tímabili ársins 2008 var tapið '10,6 milljarðar.
Í tilkynningu frá Icelandair segir, að stjórn félagsins hafi ákveðið að hætta að skilgreina samstæðuna sem fjárfestingarfélag eins og ákvörðun stjórnar á sölu á eignarhlutum í SmartLynx, Bluebird og Travel Service sýni. Fjárhagsleg endurskipulagning félagsins sé á lokastigum en legið hafi fyrir lengi, að Icelandair Group sé of skuldsett og vaxtabyrði þess of há.
Heildarvelta var 80,3 milljarðar króna og jókst um 11% á milli ára. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað var 8,1 milljarður króna en var 3,1 milljarður króna árið á undan. Afskriftir voru 6,7 milljarðar króna sem er lækkun um 3,7 milljarða frá fyrra ári. Fjármagnskostnaður var 6 milljarðar króna samanborið við 1,9 milljarða króna árið áður. Handbært fé í lok ársins 2009 var 1,9 milljarðar króna, en var 4,1 milljarður árið áður. Heildareignir námu 89,1 milljarði í lok árs 2009 og eiginfjárhlutfall var 16,4% í lok árs 2009, en var 20,1% í lok árs 2008.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningu að árið 2009 hafi verið afar erfitt í alþjóðlegum flugrekstri. Á árinu 2009 hafi hins vegar verið hagnaður bæði hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands, dótturfélögum Icelandair Group. Jafnframt hafi verið hagnaður af starfsemi Loftleiða, Bluebird og Iceland Travel. Fyrir þennan árangur þakka ég starfsfólki okkar sérstaklega.
Hins vegar sé mikið tap á árinu vegna ábyrgða sem Icelandair Group veitti SmartLynx árið 2007, vegna olíuvarna hjá Travel Service og vegna mikillar skuldsetningar móðurfélagsins sem eigi rætur sínar að rekja til ársins 2006. Tap ársins 2009 megi fyrst og fremst rekja til vandamála vegna of mikillar skuldsetningar fyrirtækisins í góðærinu.



















