Lögreglurannsókn á Goldman Sachs
Lögreglurannsókn er nú hafin á starfsemi bandaríska bankans Goldman Sachs. Að sögn bandaríska viðskiptablaðsins Wall Street Journal kærði bandaríska fjármálaeftirlitið bankann til saksóknaraembættisins á Manhattan í New York.
Blaðið segir, að rannsóknin sé á frumstigi en snúist um hvort bankinn eða starfsmenn hans hafi brotið lög í tengslum við viðskipti með fasteignaskuldabréf.
Í síðustu viku höfðaði fjármálaeftirlitið einkamál gegn bankanum og hélt því fram, að Goldman hefði leyft vogunarsjóði að setja saman fjármálavafninga með svonefndum undirmálslánum á bandarískum fasteignamarkaði. Þessir vafningar voru síðan seldir viðskiptavinum bankans en vogunarsjóðurinn veðjaði á sama tíma að fasteignalánin myndu lenda í vanskilum eða vera afskrifuð.
Segir fjármálaeftirlitið, að Goldman Sachs hafi afvegaleitt fjárfesta varðandi þessa fjármálavafninga og skortselt þá vegna væntinga um að bandaríski fasteignamarkaðurinn myndi hrynja eins og gerðist. Það hrun olli síðan alþjóðlegu fjármálakreppunni.
Stjórnendur Goldman Sachs neita sök.
Wall Street Journal segir, að lögreglurannsóknin beinist að öðrum þáttum málsins en mál fjármálaeftirlitsins. Leggur blaðið áherslu á, að slíkar rannsóknir hefjist oft en ákærur séu ekki alltaf lagðar fram í kjölfarið.



















