Vísitala framleiðsluverðs lækkar

Alcan í Straumsvík.
Alcan í Straumsvík. mbl.is/Ómar

Vísitala framleiðsluverðs í mars lækkaði um 2,7% frá febrúar, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 0,7%  frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 8%. Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,5% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,8%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,5% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 3,7%.

Miðað við mars 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 28,4% en verðvísitala sjávarafurða um 22,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 62,8% en matvælaverð hefur hækkað um 2,9%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK