Viðskipti
| AFP
| 3.5.2010
| 8:44
| Uppfært
21:15
Stærsta flugfélag heims
Bandarísku flugfélögin United Airlines og Continental Airlines eru að sameinast og hefur þriggja milljarða Bandaríkjadala, 384 milljarða króna, samrunaáætlun félaganna verið samþykkt í stjórnum beggja, samkvæmt frétt bandaríska dagblaðsins New York Times.
Sameinað félag mun heita United og verður þetta kynnt formlega í dag. Alls er markaðshlutdeild félagsins 7% á heimsvísu og nær fyrsta sætinu af bandaríska flugfélaginu Delta sem er með 6% markaðshlutdeild, samkvæmt frétt NYT. Nýja félagið er með 21% markaðshlutdeild í Bandaríkjunum.
Flugfélög víða um heim eiga í verulegum rekstrarerfiðleikum vegna hás eldsneytisverðs, samkeppni frá lággjaldaflugfélögum, fækkun farþega vegna kreppunnar, hertra öryggisreglna vegna árása og sérstakra aðstæðna svo sem eins og þegar aska frá eldgosinu í Eyjafjallajökli stöðvaði nánast allt flug.Stjórnendur flugfélaganna tveggja vonast til þess að hægt verði að draga verulega úr rekstrarkostnaði og bæta afkomuna að sama skapi með samrunanum.
Hins vegar má vænta þess að samruninn eigi eftir að sitja í samkeppnisyfirvöldum í Bandaríkjunum vegna stærð félaganna, samkvæmt frétt Wall Street Journal.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















