Viðskipti
| AFP
| 4.5.2010
| 11:09
Hagnaður UBS 2,2 milljarðar franka
Hagnaður svissneska bankans UBS nam 2,2 milljörðum svissneskra franka á fyrsta ársfjórðungi sem svarar til 262 milljörðum króna. Er þetta 83% aukning frá síðasta ársfjórðungi 2009 en á fyrsta ársfjórðungi 2009 nam tap UBS 2 milljörðum franka. Er afkoma UBS betri heldur en spáð hafði verið.
Öll svið bankans skiluðu hagnaði fyrir skatta, þar á meðal fjárfestingabankastarfsemi hans en mikið tap hefur verið á rekstri þess sviðs undanfarin misseri.
Þrátt fyrir góða afkomu vara stjórnendur UBS við því að staðan í evrópskum efnahagsmálum sé afar ótrygg um þessar mundir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















