Órói á evrópskum mörkuðum

Mikill órói er á evrópskum gjaldeyris- og verðbréfamörkuðum
Mikill órói er á evrópskum gjaldeyris- og verðbréfamörkuðum Reuters

Mikill órói er á evrópskum gjaldeyris- og verðbréfamörkuðum. Á Spáni hefur hlutabréfavísitalan, Ibex-35, lækkað um rúm 3% og svipað er uppi á teningnum í grísku kauphöllinni.  Gengi evrunnar hefur ekki verið lægra í eitt ár en í morgun stóð hún í 1,3112 dölum.

Á Spáni hafa hlutabréf í stærstu bönkum landsins lækkað mjög, Santander og BBVA um rúm 4%. 

Í Lundúnum hefur FTSE vísitalan lækkað um 1,14%. Breska olíufélagið BP hefur lækkað mikið í verði en hlutabréf félagsins hafa fallið um 15% frá því sprengingin varð í olíuborpalli BP í Mexíkóflóa þann 22. apríl sl.

DAX vísitalan í Frankfurt hefur lækkað um 0,86% og CAC í París um 1,55%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK