Viðskipti
| mbl
| 4.5.2010
| 11:12
Skuldatryggingarálag lækkar
Skuldatryggingarálag ríkissjóðs Íslands hefur lækkað umtalsvert á undanförnum dögum. Fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka í dag, að í morgun var álagið til 5 ára 375 punktar eða 3,75% en fyrir viku síðan var það 425 punktar.
Það sem af er árinu hefur álagið verið að meðaltali 487 punktar en hámarki náði það í byrjun febrúar þegar það fór í 675 punkta.
Greining Íslandsbanka segir, að líklega megi rekja lækkunina til almennrar stemmningar á markaði með skuldatryggingar.
Þannig hafi skuldatryggingaálag annarra ríkja einnig lækkað undanfarna
viku þar á meðal álag Grikklands, Spánar og Portúgals. Þetta bendi til þess að áhættufælni sé nú
á undanhaldi, að minnsta kosti í bili.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















