Stiglitz lýsir áhyggjum af gríska samningnum
Bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz, sem m.a. hefur fjallað um fjármálakreppuna hér á landi, lýsti í dag áhyggjum af þeim kvöðum, sem fylgja lánalínum Grikkja hjá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
„Það er ágætt að Evrópa tók sig loks saman í andlitinu og kom saman lánapakka," til að bjarga Grikklandi, sagði Stiglitz í samtali við breska ríkisútvarpið BBC.
Hann lýsti hins vegar áhyggkum af þeim ströngu fjármálalegu kröfum, sem gerðar eru til Grikkja.
„Ef fjárlög eru skorin niður of harkalega veikist efnahagslífið, skatttekjur minnka og staða ríkisfjármála batnar ekki eins mikið og menn vonuðust til. Þetta er sérstaklega viðeigandi vegna þess að önnur Evrópuríki þurfa að gera svipaðar æfingar og afleiðingin er sú, að efnahagsbatinn í Evrópu, sem byggist á samstilltri stefnu ríkja, verður minni."
Háttsettir evrópskir stjórnmálamenn sögðu, að Grikkir yrðu að uppfylla skilyrðin sem sett voru fyrir lánafyrirgreiðslunni en ella ættu þeir á hættu að lánsloforðin yrðu afturkölluð. Í því felast umtalsverður niðurskurður ríkisútgjalda, þar á meðal launalækkun hjá opinberum starfsmönnum, og skattahækkanir.
Stiglitz fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2001 og var m.a. um tíma efnahagsráðgjafi Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann hefur einnig starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.



















