Viðskipti
| mbl
| 5.5.2010
| 11:27
Æskilegt væri að lækka vexti meira
Vegna mikils slaka í þjóðarbúskapnum og atvinnuleysis er ljóst að æskilegt væri að geta lækkað vexti meira en raunin hefur verið, að því er segir í Peningamálum Seðlabanka Íslands.
Nauðsyn þess að tryggja nægan áhættuleiðréttan vaxtamun gagnvart útlöndum til að styðja við gengi krónunnar á meðan á endurskipulagningu fjárhags heimila og fyrirtækja stendur hefur hins vegar dregið úr svigrúmi peningastefnunnar til að taka stærri skref í lækkun vaxta.
Mikil verðbólga og tiltölulega háar verðbólguvæntingar hafa einnig dregið úr svigrúmi peningastefnunnar. Hjaðni verðbólga áfram, eins og spáð er, og haldist verðbólguvæntingar í skefjum, gætu vextir Seðlabankans lækkað áfram, samkvæmt Peningamálum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















