Viðskipti
| mbl
| 6.5.2010
| 8:18
| Uppfært
10:17
Aukinn hagnaður hjá BankNordik
Hagnaður BankNordik, sem áður hét Føroya Banki, nam 337,4 milljónum danskra króna, 7,6 milljörðum króna, á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður bankans 42,3 milljónum danskra króna.
Hagnaður fyrir skatta nam 411 milljónum danskra króna en var 52 milljónir danskra króna á sama tímabili í fyrra. Er þetta mesti hagnaður á einum ársfjórðungi í sögu bankans.
Hagnaður BankNordik af sölu fiskeldisfélagsins Bakkafrost nam 380 milljónum danskra króna á ársfjórðungnum. Þá keypti bankinn 9 bankaútibú í Danmörku og 3 í Grænlandi og hyggur á vöxt utan Færeyja.
Hér er hægt að sjá nánar um uppgjör BankNordik
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















