Viðskipti
| Morgunblaðið
| 6.5.2010
| 5:30
| Uppfært
5:48
Fjárfestar munu á endanum meðtaka góðar fréttir frá Íslandi
Franek Rozwadowski (t.h.) og Mark Flanagan, fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi. mbl.is/RAX
Mark Flanagan, formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, telur að skuldastaða íslenska ríkisins verði undir meðaltali OECD-ríkjanna eftir nokkur ár, nái efnahagsáætlun sjóðsins fram að ganga.
Hann segir nauðsynlegt að efla gjaldeyrisforðann með lántökum og án þess verði ekki hægt að afnema gjaldeyrishöftin.
„Miðað við spár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um skuldastöðu íslenska ríkisins eru horfurnar þegar litið er fram til ársins 2014 betri en hjá mörgum ríkjum sem njóta hæstu lánshæfiseinkunnar. Við gerum ráð fyrir að opinberar skuldir sem hlutfall af landsframleiðslu verði þá um 60% og nái það fram að ganga verður það langt undir því meðaltali sem er spáð hjá aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Þetta þýðir að staða Íslands á eftir að batna verulega haldi menn sig við efnahagsáætlunina, leggi stund á virka skuldastýringu og auki gjaldeyrisforðann. Áhættuálagið á íslensk ríkisskuldabréf er núna um 350 til 375 punktar, jafnvel aðeins hærra um þessar mundir. Þetta þýðir að íslensk stjórnvöld gætu aflað sér fjár á markaði í dag, það er að segja ef þau þyrftu og væru reiðubúin til þess að sætta sig við slík kjör. Markaðurinn hefur hins vegar ekki haft tækifæri til þess að kynna sér til hlítar hvað hefur áunnist með efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS að undanförnu. Ég held því að íslensk stjórnvöld eigi eftir að hafa greitt aðgengi að fjármagni á hagstæðum kjörum þegar að því kemur að afla sér fjár á erlendum mörkuðum,“ segir Flanagan í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins. Sjá nánar ítarlegt samtal við Flanagan í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















