Viðskipti
| AFP
| 7.5.2010
| 12:51
AIG rekið með hagnaði á ný
Bandaríska tryggingafélagið AIG, sem var bjargað frá gjaldþroti af stjórnvöldum í Bandaríkjunum í september 2008, skilaði hagnaði upp á 1,45 milljarða Bandaríkjadala, 187,7 milljörðum króna, á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra nam tap AIG 4,35 milljörðum dala.
Var hagnaður á hlut 1,21 dalur sem er mun meira en spá sérfræðinga var um en að meðaltali spáðu þeir því að hagnaðurinn næmi 48 sentum á hlut.
Sölutekjur AIG námu 16,3 milljörðum dala á fyrstu þremur mánuðum ársins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















