Askan kostaði SAS stórfé
Norræna flugfélagið SAS sagði í dag að tekjutap af völdum öskuskýsins frá Eyjafjallajökli næmi 650 til 700 milljónum sænskra króna, jafnvirði um 11 milljarða íslenskra króna.
Þetta kom fram í tilkynningu frá SAS í dag. Inni í þeirri tölu er tekjutap vegna tapaðra bókana fram til 7. maí, kostnaður vegna annars fararmáta farþega og endurgreiðslur.
Mats Jansson, forstjóri SAS, segir í tilkynningunni að SAS og önnur fyrirtæki sem tengjast flugi muni reyna að fá bætur frá Evrópusambandinu og norrænu ríkisstjórnunum á þeirri forsendu, að tryggingar þessara fyrirtækja greiða ekki tjón vegna náttúruhamfara.
SAS áætlaði að um 600 þúsund farþegar félagsins hafi ekki komist leiðar sinnar vegna flugbannsins, sem sett var vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli dagana 15. til 19. apríl. Félagið segir, að starfsemin hafi smátt og smátt komist í eðlilegt horf eftir 20. apríl en flugbannið hafi haft áhrif á bókanir í maí og júní.



















