Viðskipti
| mbl
| 7.5.2010
| 14:44
Hlutabréf lækka enn
Hlutabréf hafa lækkað í verði beggja vegna Atlantshafs í dag. Dow Jones hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í New York lækkaði um 250 stig strax í upphafi viðskipta þar. Þá hafa helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu lækkað um rúm fjögur prósent í dag.
Fjárfestar óttast, að skuldakreppan í Grikklandi kunni að hafa áhrif á alþjóðlegan fjármálamarkað og hugsanlega valda annarri lausafjárkreppu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















