Ríkið rúið trausti

Höfuðstöðvar LBBW í Stuttgart.
Höfuðstöðvar LBBW í Stuttgart.

Þýski bankinn Landesbank Baden-Württemberg (LBBW) hefur tilkynnt fjármálaráðherra að langt muni líða þar til íslenska ríkið njóti trausts á ný meðal alþjóðlegra fjármálastofnana.

Það sé meðal annars vegna vinnubragða hins opinbera í endurskipulagningu Byrs og Sparisjóðsins í Keflavík, en eignir beggja sjóða hafa verið færðar á nýja kennitölu.

Erlendir kröfuhafar eru sagðir telja furðu sæta að ríkið hafi tekið yfir sjóðina tvo, í ljósi þess að fáum dögum áður sagði í bréfi stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að endurskipulagningu sjóðanna myndi ljúka innan skamms.

Endurskipulagningaráætlun mun hafa verið samþykkt í ágúst síðastliðnum af öllum kröfuhöfum. Þegar ganga átti endanlega frá samkomulaginu í október setti ríkið ný skilyrði eiginfjárinnspýtingar, sem voru ekki talin viðunandi. „Þau fólu í sér nýjar og gjörbreyttar forsendur varðandi afskriftir og endurgreiðslu skulda,“ segir Arnar Þór Jónsson, lögmaður þýsks banka sem átti hagsmuna að gæta í Byr.

Fengu ekki að skoða skýrslu

Íslensk stjórnvöld fengu Deutsche Bank til að vinna áreiðanleikakönnun á sparisjóðunum. Að sögn Arnars Þórs óskuðu erlendir kröfuhafar eftir að sjá öll gögn málsins til að taka upplýsta ákvörðun, en fengu ekki. „Kröfuhafar komu ítrekað á framfæri áhyggjum sínum af framgangi málsins við íslensk stjórnvöld, en fátt var um svör.“
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK