Framkvæmdir fjármagnaðar með eigið fé
Afskriftir námu alls 210,5 milljónum króna. Eignir Orkubús Vestfjarða ohf. í árslok 2009 voru alls 5.343 milljónir og heildarskuldir alls 656 milljónir króna. Eigið fé nam því alls 4.687 milljónum króna sem er um 87,7 % af heildarfjármagni. Eignir Orkubús Vestfjarða ohf. hafa ekki verið endurmetnar, að því er segir í tilkynningu.
Á árinu 2009 var 350,5 milljónum varið til fjárfestinga. Orkubú Vestfjarða hefur um langt skeið fjármagnað allar framkvæmdir sínar með fé frá rekstri og er fyrirtækið því skuldlaust ef frá eru taldar eldri lífeyrisskuldbindingar. „Þessi stefna hefur leitt til þess að fjármagnskostnaður, sem nú er að sliga flest orkufyrirtæki landsins, er lítill sem enginn og unnt hefur verið að reka fyrirtækið með hagnaði á undanförnum árum," segir í tilkynningu.
Á árinu 2009 voru teknar ákvarðanir um virkjunarframkvæmdir og endurnýjun í Mjólkárvirkjun á árunum 2010 og 2011. Gert er ráð fyrir að kostnaður verði um 1.000 milljónir króna og stefnir Orkubúið að því að fjármagna þær með fé frá rekstri, á næstu þremur árum, þannig að ekki þurfi að taka langtímalán þeirra vegna.
Í stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. voru kjörin:
Guðmundur Jóhannsson, Reykjavík
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Tálknafirði
Kolbrún Sverrisdóttir, Ísafirði
Viktoría Rán Ólafsdóttir, Hólmavík og
Árni Brynjólfsson, Önundarfirði.



















