Jouyet: Bretar geta ekki treyst á ESB
Yfirmaður fjármálaeftirlits Frakka er ósáttur við Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands. Reuters
Bretar geta ekki treyst á aðstoð Evrópusambandsins ef fjármálakreppan hefur áfram þar í landi eftir að Bretar neituðu að leggja sitt af mörkum í neyðarsjóðinn sem samþykkt var að stofna í gær. Þetta segir Jean-Pierre Jouyet, yfirmaður franska fjármálaeftirlitsins. Bretar verði að verja sig sjálfir ef landið lendir í niðursveiflu á fjármálamörkuðum.
Jouyet segir í viðtali við Europe 1 útvarpsstöðina í dag að líklegt sé að ef stjórnmálakreppan dregst á langinn í Bretlandi þá muni fjármálakreppan þar dýpka. Bretar hafi neitað að styðja við bakið á evru-ríkjunum í þeim vanda sem þar ríkir og því sé eðlilegt að Bretar bjargi sér sjálfir ef þeir vilja ekki sýna öðrum ESB þjóðum samstöðu.
Jouyet, sem var ráðherra Evrópumála í frönsku ríkisstjórninni á árunum 2007-2008, var greinilega reiður út í fjármálaráðherra Bretlands, Alistair Darling, en ráðherrann neitaði að styðja við bakið á sjóðnum, að því er segir á vef Telegraph.Gekk Jouyet svo langt að lýsa þrískiptingu innan Evrópusambandsins. Það væru evru-ríkin, það væru ríki ESB sem hefðu skilning á evrunni og svo væru það Englendingar.
En þrátt fyrir að Darling hafi ekki viljað 440 milljarða evru sjóðnum lið þá munu Bretar leggja sitt af mörkum í 60 milljarða sjóðinn sem kemur frá neyðarsjóði ESB.



















