Viðskipti
| mbl
| 12.5.2010
| 8:36
2,5% samdráttur í Frakklandi í fyrra
Tölur, sem franska hagstofan birt í morgun, sýna að samdráttur franska hagkerfisins á síðasta ári var 2,5% sem er meira en spár gerðu ráð fyrir. Hagvöxtur mældist 0,1% á fyrsta fjórðungi ársins en frönsk stjórnvöld stefna að 1,4% hagvexti á árinu öllu.
Hagstofan segir, að væntingar neytenda séu litlar og það haldi aftur af hagvextinum. Einkaneysla er venjulega einn helsti drifkraftur hagvaxtar í Frakklandi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















