Viðskipti
| mbl
| 12.5.2010
| 9:16
Hagvöxtur á evrusvæði
Reuters
Hagvöxtur á evrusvæðinu svonefnda mældist 0,2% á fyrsta ársfjórðungi ársins 2010 samanborið við tölour frá síðasta fjórðungi ársins 2009. Miðað við fyrsta ársfjórðung síðasta árs var hagvöxturinn 0,5%.
Hagvöxtur í Evrópusambandinu öllu var einnig 0,2% á fyrsta fjórðungi samanborið við síðasta ársfjórðung ársins 2009 og 0,3% ef borið var saman við þann fyrsta.
Birtar hafa verið tölur um verga landsframleiðslu í mörgum Evrópuríkjum í morgun. Meðal annars sýndu tölur frá grísku hagstofunni, að gríska hagkerfið dróst saman um 0,8% á fyrsta fjórðungi ársins.
Þá mældist samdrátturinn í Búlgaríu 4% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við sama tímabil ársins 2009.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















