Hagvöxtur á Spáni og í Ungverjalandi
Verg landsframleiðsla á Spáni jókst um 0,1% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við ársfjórðunginn á undan, að sögn hagstofu landsins. Samdráttur hefur verið í spænska hagkerfinu allt frá öðrum ársfjórðungi 2008 og miðað við 1. ársfjórðung árið 2009 mældist samdrátturinn 1,3% á fyrsta ársfjórðungi nú.
Spánn er einna síðastur af stóru hagkerfunum í Evrópu til að komast út úr samdráttarskeiðinu. Markmið stjórnvalda er að samdráttur á þessu ári verði ekki meiri en 0,3% en hann var 3,6% á síðasta ári.
Tölur sem birtar voru á Ítalíu í morgun sýna, að ítalska hagkerfið óx um 0,5% samanborið við síðasta fjórðung ársins 2009. Á þeim ársfjórðungi mældist 0,1% samdráttur. Spáð er 1% hagvexti á Ítalíu á þessu ári.
Birtar voru tölur í morgun, sem sýndu að ungverska hagkerfið óx um 0,9% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við síðasta fjórðung ársins 2009. Þá var hagvöxtur í Slóvakíu 0,8% á sama tíma miðað við fjórðunginn á undan og 4,5% ef miðað var við sama tímabil árið 2009. Á síðasta ári mældist samdráttur í slóveska hagkerfinu 4,7% en spáð er 3,2% hagvexti í ár. Slóvakía tók upp evru á síðasta ári.
Enn er samdráttur í Rúmeníu. Á fyrsta fjórðungi ársins mældist samdrátturinn 0,3% miðað við síðustu þrjá mánuði ársins 2009 og 2,5% ef miðað er við sama tímabil ári fyrr.
Á síðasta ári var samdrátturinn í Rúmeníu 7,2%. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáði því nýlega, að 0,5% samdráttur verði á öllu árinu 2010.



















