Viðskipti
| mbl
| 12.5.2010
| 17:59
| Uppfært
19:04
Tap hjá Atlantic Airways
Tap á rekstri færeyska flugfélagsins Atlantic Airways var 5,7 milljónir danskra króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins. Á sama tímabili á síðasta ári var 11,5 milljóna danskra króna hagnaður á rekstrinum.
Þá dróst veltan saman úr 101,3 milljónum danskra króna á fyrsta ársfjórðungi í fyrra í 78,8 milljónir nú.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















