Viðskipti
| AFP
| 13.5.2010
| 7:44
Aðgerðir Spánverja hafa áhrif til hækkunar
Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað í morgun, FTSE vísitalan í Lundúnum hefur hækkað um 0,80%, DAX í Frankfurt um 0,82% og CAC í París um 1,07%. Svipaða sögu er að segja af helstu mörkuðum í Asíu og eru hækkanir dagsins raktar til þess að spænsk stjórnvöld kynntu í gær áætlun um að draga úr skuldum ríkissjóðs.
Þykir ákvörðun Spánverja merki um að ríki Evrópusambandsins ætli að gæta þess að vandi Grikkja fari ekki víðar um álfuna.
Í Tókýó hækkaði Nikkei um 2,2% en í gærkvöldi hækkaði Dow Jones vísitalan á Wall Street um 1,5%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















