Afkoma Sony á réttri leið
Afkoma japanska raftækjafyrirtækisins Sony verður væntanlega réttu megin við núllið á yfirstandandi rekstrarári en félagið hefur gengið í gegnum viðamiklar aðgerðir til þess að draga úr kostnaði.
Samkvæmt áætlun Sony er gert ráð fyrir því að hagnaður félagsins nemi 50 milljörðum jena, 70 milljörðum króna, á rekstrarárinu sem lýkur í lok mars 2011.
Meðal þess sem Sony framleiðir er Bravia sjónvarpstæki, PlayStation leikjatölvur og myndavélar. Stefnt er að því að setja þrívíddarsjónvörp á markað á árinu.
Tap Sony nam 40,8 milljörðum jena á síðasta rekstrarári En rekstrarhagnaðurinn nam 31,8 milljörðum jena samanborið við 227,8 milljarða jena tap á árinu á undan. Er það versta afkoma Sony frá upphafi og þurfti félagið að segja upp um 20 þúsund starfsmönnum þegar reksturinn var endurskipulagður.



















