Glitnir lagðist gegn kyrrsetningarbeiðni þrotabús
Skiptastjóri Fons, Óskar Sigurðsson, lagði það til á skiptafundi kröfuhafa félagsins í mars síðastliðnum að eignir þremenninganna Pálma Haraldssonar, Jóhannesar Kristinssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar yrðu kyrrsettar.
Tveir fyrrnefndu voru eigendur Fons þar til það var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir rúmlega ári.
Fulltrúar Glitnis, sem fer með stærstan hluta krafna í þrotabú Fons, sögðust á fundinum vilja bíða með kyrrsetningaraðgerðir þar til riftunarmál sem skiptastjóri hefði þegar höfðað hefðu verið leidd til lykta fyrir dómstólum. Hins vegar hefur skilanefnd Glitnis nú óskað kyrrsetningar á öllum eignum Jóns Ásgeirs og Pálma Haraldssonar vegna viðskipta þeirra við bankann. Því virðist sem fulltrúar Glitnis hafi viljað tefja tímann, en sýslumaðurinn í Reykjavík hefur þegar kyrrsett eignir Jóns Ásgeirs.
Sjá nánar ítarlega umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.



















