Höfða mál gegn Actavis
Bandarískt dótturfyrirtæki lyfjaframleiðandans Shire PLC hefur höfðað mál gegn Actavis Elizabeth LLC og Actavis Inc. og heldur því fram að Actavis hafi brotið gegn þremur einkaleyfum Shire tengdum blóðþrýstingslyfinu Intuniv.
Að sögn fréttaveitu Dow Jones stafar málshöfðunin fyrir dómstóli í Delaware í Bandaríkjunum af umsókn Actavis í Bandaríkjunum um að framleiða samheitalyf. Shire, sem er þriðji stærsti lyfjaframleiðandi Bretlands, telji að Actavis vilji framleiða samheitalyf áður en undirliggjandi einkaleyfi vegna Intuniv renna út.
Virka efnið í lyfinu heitir guanfacine. Sala á því hófst í Bandaríkjunum seint á síðasta ári og það er varið af þremur einkaleyfum sem renna út árið 2015, 2020 og 2022.
Shire höfðaði mál gegn ísraelska lyfjaframleiðandanum Teva og taldi að Teva hefði brotið gegn tveimur einkaleyfum vegna Intuniv



















