Viðskipti
| mbl
| 18.5.2010
| 16:44
Enn lækkar vísitala fasteignaverðs
mbl.is
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 303 stig í apríl 2010 og lækkar um 0,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 3,4% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 3,6%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, samkvæmt frétt á vef Fasteignaskrár Íslands.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















