Tapaði 94% á bréfum Eimskips
Um 94-95% af skuldabréfaeign Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í Eimskip og Stoðum (áður FL-Group) hefur verið afskrifuð. Tap sjóðsins vegna þessara viðskipta er samtals um 3,2 milljarðar.
Þetta kom fram í ræðu Guðmundar Þ. Þórhallssonar, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, á ársfundi sjóðsins í gær.
Sjóðurinn átti um 1,6 milljarða í skuldabréfum sem Samson gaf út en öll sú upphæð hefur verið færð á varúðarreikning, en það þýðir að sjóðurinn telur ólíklegt að nokkuð fáist upp í þessa kröfu.
Horfur eru á að sjóðurinn tapi hins vegar mestu á Bakkavör og Existu. Sjóðurinn hefur fært 3,4 milljarðar vegna skuldabréfa Bakkavarar í varúðarafskriftarreikning, sem þýðir 67% lækkun á verðmæti skuldabréfanna. Þá hefur sjóðurinn sett 3,5 milljarða af skuldabréfum Existu á varúðarreikning, sem er lækkun á verðmæti bréfanna um 88%.
Lífeyrissjóðurinn tapaði einnig miklu á falli bankanna. Í fyrra setti sjóðurinn um 5,3 milljarða á varúðarreikning vegna Straums.



















