Viðskipti
| mbl
| 19.5.2010
| 15:46
Besta afkoma Atlantic Petroleum
Hagnaður af rekstri færeyska olíufélagsins Atlantic Petroleum nam 20,5 milljónum danskra króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins, jafnvirði 440 milljóna íslenskra króna. Afkoma félagsins fyrir skatta sú besta frá því það var stofnað árið 1998.
Hagnaður eftir skatta nam 15,3 milljónum danskra króna á sama tímabili í fyrra.
Tekjur fyrirtækisins námu 76,9 milljónum danskra króna nú en 26,6 millljónum danskra króna í fyrra. Fyrirtækið er byrjað að framleiða olíu á tveimur svæðum á Atlantshafi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















