Nýr stjórnarmaður í Arion banka
Fjölgað var um einn í stjórn Arion banka á aðalfundi bankans í dag. Nýr stjórnarmaður er Colin C. Smith frá Bretlandi. Í stjórn bankans sitja nú Monica Caneman, stjórnarformaður, Guðrún Johnsen varaformaður, Kristján Jóhannsson,
Steen Hemingsen, Theodór S. Sigurbergsson og Colin C. Smith.
Colin C. Smith útskrifaðist frá King Edward V1 Grammar School í Stratford-upon-Avon árið 1964. Hann starfaði hjá Midland Bank og gegndi síðan ýmsum stjórnunarstörfum hjá European American Bank og US Multinational Corporate Group í Austur-Asíu. Hann sneri aftur til Midland Bank árið 1987 sem þá var að stíga upp úr alþjóðlegri fjármálakreppu. Þar gegndi hann stöðu forstöðumanns alþjóðlegs áhættustýringar og lánasviðs bankans og varð síðar forstjóri yfir sama sviði.
Árið 1991 tók HSBC Midland Bank yfir og sinnti Colin stjórnunarstörfum þar til hann lét af störfum árið 2003. Frá þeim tíma hefur hann sinnt ýmsum ráðgjafarstörfum.



















