Viðskipti
| mbl
| 21.5.2010
| 11:15
Evra styrkist gagnvart dalnum
Gengi krónunnar hefur styrkst um 0,13% í morgun og er gengisvísitalan 217,30 stig. Skýrist styrkingin af hreyfingum milli evru og Bandaríkjadals en evran hefur heldur styrkst gagnvart Bandaríkjadal undanfarna daga. Engin viðskipti hafa verið á millibankamarkaði hér á landi með gjaldeyri í dag.
Evran er 160,40 krónur, Bandaríkjadalur er 128,40 krónur, pundið er 183 krónur og danska krónan er 21,55 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















