Stuðningur fjármálakerfis ónægur
mbl.is
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is
Stuðningi fjármálakerfisins við íslenskt atvinnulíf er verulega ábótavant, ef marka má nýja könnun IMD-viðskiptaháskólans í Sviss á samkeppnishæfni landa. Könnun IMD er að tveimur þriðju hlutum byggð á hagtölum og -gögnum, en að þriðjungi á svörum atvinnulífsins. Sá þáttur er snýr að stuðningi, gagnsæi og áhættu fjármálakerfisins er alfarið byggður á svörum atvinnulífsins, samkvæmt upplýsingum frá Viðskiptaráði.
Af þeim 58 löndum sem könnunin tekur til situr Ísland í botnsætinu þegar kemur að styrk og gagnsæi fjármálakerfisins. Gagnsæi fjármálastofnana þykir minnst á Íslandi af öllum löndum, og áhætta kerfisins er mikil. Jafnframt er skuldabyrði fyrirtækja allt of mikil til að þau geti tekið þátt í samkeppnismarkaði af fullum krafti. Aðhald og áhrif regluverks á Íslandi eru jafnframt ekki nægileg að mati fulltrúa atvinnulífsins sem svöruðu könnuninni. 48 fyrirtæki úr öllum geirum svöruðu könnunni, en Viðskiptaráð er samstarfsaðili IMD hér á landi.
Seðlabanki Íslands fær jafnframt ekki háa einkunn í könnun IMD, en peningastefnan er að mati þeirra er unnu könnunina síst til þess fallin að styðja við atvinnulíf á Íslands. Fjármagnskostnaður íslenskra fyrirtækja er talinn til helstu veikleika íslenska hagkerfisins, sem og aðgengi þeirra að fjármagnsmörkuðum erlendis.
Góð vinnumarkaðslöggjöf
IMD telur sveigjanleika íslensks vinnumarkaðar til helstu styrkleika Íslands. Jafnframt eru vel fjármagnaðir lífeyrissjóðir taldir Íslandi til tekna. Samfélagslegir innviðir á sviði mennta- og heilbrigðisþjónustu þykja með þeim öflugustu. Umhverfismál þykja í besta standi hérlendis, sérstaklega með tilliti til mengunar.Í hnotskurn
Í hnotskurn» Ísland situr í 30. sæti yfir þau 58 lönd sem skoðuð voru í könnun IMD, en hafnaði í 7. sæti árið 2007.
» Traust atvinnulífsins til fjármálakerfisins er með því minnsta sem gerist hjá löndum sem skoðuð voru í könnun IMD. Gagnsæi íslenskra banka er ábótavant að sama skapi.



















