Tap British Airways aldrei meira
Breska flugfélagið British Airways tapaði 531 milljón sterlingspunda, jafnvirði 99 milljarða króna, á liðnu rekstrarári, eða til síðastliðinna marsloka. Félagið hefur aldrei verið rekið með álíka halla eftir að það var einkavætt 1987.
Helstu ástæður tapsins eru sagðar fækkun flugfarþega, aukinn tilkostnaður við flug og verkföll starfsmanna. Árið á undan nam tap British Airways 401 milljón punda og er því samanlagt rekstrartap félagsins síðustu 24 mánuðina 932 milljónir punda, eða sem svarar 172 milljörðum króna á gengi dagsins.
Starfsmenn flugfélagsins hafa efnt til vinnustöðvunar til að mótmæla uppstokkun og hagræðingaraðgerðum. Á annan í hvítasunnu hafa þjónustuliðar í flugvélum þess boðað til aðgerða sem standa eiga í allt að hálfan mánuð.



















