52 fasteignir á 1.360 milljónir

mbl.is/ÞÖK

Alls var 52 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 14. maí til og með 20. maí 2010 var 52. Þar af voru 38 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.360 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 237 milljónir króna og meðalupphæð á samning 47,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 225 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,7 milljónir króna, samkvæmt vef Fasteignaskrár Íslands.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 39 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,3 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK