Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.5.2010
| 12:10
Fréttaskýring: Íslensku bankarnir uppfullir af steypu
Unnið við steypuvinni að Lækjargötu 2, á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Myndin tengist fréttinni ekki beint mbl.is/Ómar Óskarsson
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is
BM Vallá hefur nú um skeið verið í greiðslustöðvun. Vísbendingar eru um að félagið hafi stundað að undirbjóða keppinauta sína ríflega á greiðslustöðvunartímabilinu. Morgunblaðið hefur undir höndum gögn sem sýna að BM Vallá bauð 15% lægra verð en næstlægsta boð í nýlegu útboði. Þess ber þó að geta að Morgunblaðið hefur aðeins gögn undir höndum um þetta eina útboð.
Keyptu af skiptastjóra
Tæpum mánuði eftir að Loftorka í Borgarnesi var tekin til gjaldþrotaskipta samdi hópur fjárfesta við skiptastjóra félagsins um kaup á rekstri, tækjum og birgðum félagsins. Fjárfestahópurinn var samsettur af nokkrum starfsmönnum og fyrrverandi eiganda sem hafði áður selt fyrirtækið frá sér. 45 starfsmenn voru ráðnir til fyrirtækisins á ný eftir kaupin.Steypustöðin of dýr?
Íslandsbanki tilkynnti í nóvember síðastliðnum að Steypustöðin yrði sett í söluferli. Í kjölfarið bárust bankanum tilboð, og einhverjir tilboðsgjafa gengu til áframhaldandi viðræðna við bankann. Steypustöðin hefur hins vegar ekki verið seld, en heimildir Morgunblaðsins herma að Íslandsbanki hafi viljað helst til hátt verð fyrir Steypustöðina. Eftir því sem næst verður komist vildi bankinn á bilinu 700-900 milljónir fyrir Steypustöðina. Fyrirtækið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir 2009, en á árinu 2008 nam rekstrarhagnaður Steypustöðvarinnar fyrir fjármagnsliði rúmlega 24 milljónum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















