Viðskipti
| Morgunblaðið
| 27.5.2010
| 5:30
| Uppfært
6:08
Efnahagsbrotadeild lögreglunnar veikist
Nokkuð hátt hlutfall starfsmanna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hefur fært sig yfir til embættis sérstaks saksóknara. Sérstökum saksóknara er ætlað að rannsaka efnahagsbrot tengd bankahruninu í október 2008, en önnur efnahagsbrot heyra undir efnahagsbrotadeild.
Meðal mála sem heyra undir deildina eru brot á lögum um gjaldeyrisviðskipti. Fyrir skömmu var boðað til blaðamannafundar með lúðrablæstri þar sem greint var frá rannsókn á umfangsmiklum milligönguviðskiptum með krónur á aflandsmarkaði.
Heimildir Morgunblaðsins herma að efnahagsbrotadeild eigi nokkuð í land með að gefa út ákæru í málinu. Raunar hafi því þokað lítið áfram frá því að gjaldeyriseftirlit Seðlabankans vísaði málinu til lögreglu. Er það ekki síst rakið til mannfæðar og fjárskorts efnahagsbrotadeildar. Starfsmaður deildarinnar, sem hafði meint brot á gjaldeyrislögum á sínu borði, hefur jafnframt hafið störf hjá sérstökum saksóknara. Því þurfti að setja nýjan mann í málið hjá efnahagsbrotadeild.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















