Færri fyrirtæki stofnuð en áður
Flest gjaldþrot verða í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um þessar mundir. Kristján Kristjánsson
Í apríl 2010 voru skráð 119 ný einkahlutafélög samanborið við 189 einkahlutafélög í apríl 2009, sem jafngildir rúmlega 37% fækkun milli ára. Á sama tíma voru 62 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 85 fyrirtæki í apríl 2009, sem jafngildir rúmlega 27% fækkun milli ára.
Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofunnar. Alls hafa 588 einkahlutafélög verið stofnuð fyrstu fjóra mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúmlega 33% frá sama tímabili árið 2009 þegar 879 ný einkahlutafélög voru skráð.
Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi.
Flest gjaldþrot í apríl voru í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð. Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 er hafa
355 orðið gjaldþrota sem er rúmlega 2% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 346
fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.



















