Hagstæð vöruskipti í apríl
Fluttar voru út vörur í apríl fyrir tæpa 40,8 milljarða króna og inn fyrir 34,4 milljarða króna samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Er þetta í samræmi við bráðabirgðatölur, sem birtar voru í byrjun maí. Það sem af er árinu er vöruskiptajöfnuðurinn 9,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma í fyrra.
Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um rúma 6,3 milljarða króna. Í apríl 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 0,4 milljarða króna á sama gengi.
Fyrstu fjóra mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 176,8
milljarða króna en inn fyrir 139,1 milljarð króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob
verðmæti, sem nam 37,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau
hagstæð um 28,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því
9,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Fyrstu
fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 6,2% meira á
föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38% alls
útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% meira en á sama tíma árið áður.
Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,5% alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 40,1% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti
útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á
skipum og flugvélum.
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings tæpum 1,1 milljarði eða 0,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.



















