Latibær í hendur lánardrottna
Morgunblaðið
Íþróttaálfurinn er nýjasta fórnarlamb íslensku fjármálakreppunnar, samkvæmt frétt breska blaðsins Telegraph. Á vef blaðsins kemur fram að Magnús Scheving hafi þurft að afsala sér höfundaréttinum af sköpun sinni gegn 40% hlut í félaginu. Landsbankinn og Íslandsbanki leiða hóp lánardrottna Latabæjar sem hafa tekið félagið yfir. Alls þurfti að endurfjármagna skuldir Latabæjar upp á 32 milljónir Bandaríkjadala, rúmlega 4,1 milljarð króna.
Yfir þrjátíu lánadrottnar Latabæjar þurftu að afskrifa stóran hluta af skuld Latabæjar við þá en Latibær skuldaði þeim 22 milljónir Bandaríkjadala. Fá þeir 31% hlut í félaginu í stað skuldarinnar.
Landsbankinn eignast 12% hlut í Latabæ en lán félagsins hjá bankanum upp á 12 milljónir dala voru á gjalddaga á næsta ári. Hefur bankinn veitt félaginu nýtt lán upp á 2,4 milljónir dala, samkvæmt frétt Telegraph.
Latibær er í einu og öllu hugarsmíð Magnúsar Scheving og eiginkonu hans Ragnheiðar Melsteð. Fyrirtækið Latibær hefur starfað á Íslandi frá árinu 1995.
Aðrir hluthafar, svo sem Jón Ásgeir Jóhannesson, hafa þurft að afskrifa hlutafé sitt og eina ástæðan fyrir því að Magnús og Ragnheiður eiginkona hans fá að halda 40% hlut í félaginu er að þau afsala sér höfundaréttinum að Latabæ en þau voru áður með höfundaréttinn í sér félagi.
Samkvæmt mati KPMG og fleiri sem komu að endurskipulagningu rekstrar Latabæjar er markaðsvirði Latabæjar einungis helmingur þess sem félagið var metið á fyrir þremur árum en þá var það metið á 80 milljónir Bandaríkjadala.
Telegraph vísar í tilkynningu frá Latabæ þar sem fram kemur að eftir endurskipulagningu þá sé ekki um neinar afborganir af lánum að ræða hjá félaginu næstu tvö árin sem geri það að verkum að Latibær sé í góðri aðstöðu til frekari vaxtar.



















