Lífeyrissjóðir losa Seðlabankann við skuldabréf Avens

Um helgina keyptu lífeyrissjóðirnir  Avensisbréfin sem Seðlabanki Íslands keypti af Seðlabankanum í Lúxemborg á dögunum. Um er að ræða kaup lífeyrissjóðanna á ríkisbréfum fyrir 88 milljarða króna. Lífeyrissjóðirnir greiða í evrum og þar af leiðandi stækkar gjaldeyrisforði SÍ um 17% eftir viðskiptin.

Þessi bréf komust í eigu Seðlabankans í Lúxemborg eftir að Landsbankinn féll, en hann hafði notað þau í endurhverfum verðrbéfaviðskiptum við bankann fyrir fallið. Seðlabanki Íslands borgaði fyrir bréfin í evrum og þar af leiðandi rýrnaði gjaldeyrisstaða bankans við viðskiptin. Fyrir það hefur nú verið bætt með viðskiptunum við lífeyrissjóðina, þar sem að þeir leggja fram evrur fyrir bréfin. 

Á fundi sem nú stendur yfir með blaðamönnum sagði Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, að þessi viðskipti munu flýta fyrir afnámi gjaldeyrishaftanna. 

 
  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK